Um Kjöthornið
Hver er maðurinn?
Ég heiti Guðmundur Helgason og hef búið á Hvammstanga síðan í maí 2004. Ég er kjötiðnaðarmaður og kom norður til að vinna í sláturhúsinu á staðnum. Þar var ég í rúm tvö ár og er því öllum hnútum kunnugur þar. Ég lærði kjötiðn á tveimur stöðum, fyrst í tvö og hálft ár í kjötvinnslu SS á Hvolsvelli, þá flutti ég til Reykjavíkur og kláraði í Kjötvinnslu Sigurðar í Kópavogi. Sveinsprófið tók ég í febrúar 1998.
Á námstímanum var ég í Danmörku í þrjá mánuði, fékk að sitja þar fimm vikna kúrs með dönskum kjötiðnaðarnemum sem voru á svipuðu róli í náminu. Að þeim tíma liðnum var ég í kjötbúð í Hróarskeldu í þrjár vikur og svo þrjár vikur í kjötdeildinni í stórmarkaði þar. Hafði ég mjög gott af þessari námsdvöl ytra og hef búið að henni æ síðan.
Að kjötiðnaðarnáminu loknu hóf ég störf í kjötborði Nóatúns við Hringbraut, var þar þó einungis í fjóra mánuði, fór þá að vinna í því gamalgróna fyrirtæki Kjöthöllinni við Skipholt. Árið 2001 tók ég aðra stefnu, kláraði bóklegt atvinnuflugmannsnám, en tók í upphafi árs 2002 að mér að hafa umsjón með kjötborðunum í Hagkaupsbúðunum á höfuðborgarsvæðinu. Þá höfðu Ferskar Kjötvörur tekið við þeim rekstri, þessu verkefni fylgdi ég úr hlaði fyrstu tvo til þrjá mánuðina, en fór þá að vinna í Kjötbankanum í Hafnarfirði. Eftir eitt og hálft ár þar kom að því að draga þurfti saman seglin og mér því sagt upp ásamt tveimur öðrum, sem höfðu verið álíka stutt og ég. Þá var kominn nóvember 2003, ég fór þá aftur á upphafsreit, til SS á Hvolsvelli. Hálfu ári síðar fékk ég vinnu við Sláturhús KVH á Hvammstanga, og fluttum við fjölskyldan því búferlum þangað, á æskustöðvar konunnar.
Árið 2006 sneri ég algjörlega við blaðinu, fór að vinna við að flytja inn einingahús frá Svíþjóð, og prófa þannig eitthvað alveg nýtt. Á haustdögum 2008 hrundi svo hagkerfið íslenska og hægðist alveg um nýbyggingar á húsum hérlendis og sér tæplega fyrir endann á því ástandi. Því þótti mér upplagt að fara að nýta mér menntun mína í kjötinu, hér er mikil kjötframleiðsla og alveg þörf fyrir einhvern aðila sem getur tekið að sér fínni vinnslu á kjöti. Til þess að hrinda hugmyndum mínum í framkvæmd, hefur kaupfélagið á staðnum, KVH, veitt mér ómetanlega aðstoð og hreinlega allsstaðar hefur mínum hugmyndum verið mætt með mikilli jákvæðni og allir boðnir og búnir að greiða götu mína.
Kann ég öllum þessum aðilum bestu þakkir fyrir.
Guðmundur Helgason (Mundi)
