Hafðu samband

Þjónusta

Kjöthornið þjónustar í heimabyggð sem og utan hennar. Fyrirtæki eru hvött til að hafa samband til að heyra um verð.

Fyrirtæki

Þjónusta Kjöthornsins við fyrirtæki er kannski fyrst og fremst hugsuð sem þjónusta við mötuneyti. Nú þegar þjónustum við mötuneyti grunnskólans og heilbrigðisstofnunarinnar á staðnum.

 

Beint frá bónda

Ein af hugmyndunum á bak við Kjöthornið er sú að gefa bændum kost á að nýta sér þjónustuna þar, til að vinna það kjöt sem þeir selja beint frá sér á haustin (og allt árið að sjálfsögðu). Þá er í boði hvort heldur sem er, sögun eða úrbeining og kryddun, ásamt öllum frágangi til sendingar.

Með þessu gefst kjötframleiðendum gott tækifæri til að t.d. taka þá dilkaskrokka sem falla í fitu (sem náttúrlega er besta kjötið), vinna þá þannig að þeir verði aðlaðandi í sölu og gera með því úr þeim meiri verðmæti en ella.

Þá sjá menn um að flytja skrokkana sína sem þannig skulu unnir, í Kjöthornið eftir slátrun, þar sem hægt er að láta þá hanga á kæli og ná með því fram hámarks kjötgæðum. Þetta á að sjálfsögðu við um allar tegundir, hvort sem um er að ræða lamb, naut eða hross.

Áhugasamir sendi tölvupóst á kjothornid@gmail.com, eða hringi í s.893-1117.