Verðhækkanir
Jæja, þá eru fyrstu hækkanir á verðum komnar í hús. Fyrst um sinn er um að ræða hækkun á lamba- og kindakjöti, sjá verðskrá undir "þjónusta/fyrirtæki"
Jæja, þá eru fyrstu hækkanir á verðum komnar í hús. Fyrst um sinn er um að ræða hækkun á lamba- og kindakjöti, sjá verðskrá undir "þjónusta/fyrirtæki"
Hér í Kjöthorninu hefur farið fram þróunarvinna í lambakjöti, nánar til tekið frampörtum, sem er að skila sér í tveimur nýjungum. Önnur þeirra er prýðis góð steik, sem fljótleg er í matreiðslu. Hana kalla ég einfaldlega "Lambavefju"
Hin nýjungin er úrbeinuð bógsteik, sjá mynd hér að neðan. Bógsteikin er á bilinu 600 - 700 grömm, og því passleg fyrir 3-4 manneskjur. Bógsteikin er ágætis valkostur fyrir veislur t.d., fljótleg í matreiðslu, fullmeyrnuð og gómsæt......
| Velkomin í Kjöthornið |
|
|
|
|
Húnaþing vestra er mikið landbúnaðarhérað, sauðfjárrækt í miklum blóma, sem og hrossa- og nautgriparækt. Á Hvammstanga er starfrækt öflugt og vel útbúið sláturhús, eitt af þeim betri á landinu, þar sem slátrað er u.þ.b. 70 þús. fjár á ári, auk þess sem þar fer fram heilmikil stórgripaslátrun. Hér á staðinn hefur hins vegar vantað aðila til þess að sjá um að vinna kjöt fyrir einstaklinga, og auðvitað hópa og fyrirtæki, þar sem í boði væri persónuleg þjónusta og fjölbreytni í vinnslumöguleikum. Því var Kjöthornið sett á laggirnar, þar stendur íbúum héraðsins, og utan héraðs, að sjálfsögðu, til boða að láta vinna fyrir sig kjöt, koma með skrokka eða skrokkhluta, sem þar eru þá teknir og unnir eftir óskum, úrbeinaðir, sagaðir, kjöt hakkað, kryddað Reyking er þó ekki í boði, a.m.k. ekki fyrst um sinn (hins vegar er allsstaðar verið að reykja kjöt, allt í kring, auðvelt að verða sér úti um reykingu svosem) Húnaþing vestra er mikið landbúnaðarhérað Nú þegar ný og glæsileg heimasíða er komin í gagnið vill Kjöthornið vekja athygli á því að heiðurinn af síðunni á hún Nitta, eða Kristín Guðmundsdóttir okkar hér á Tanganum. Hún er búsett í Danmörku og leggur þar stund á nám í margmiðlunarhönnun. Neðst á síðunni má sjá nafnið, Nitta, á það er um að gera að smella og sjá hvert það leiðir mann! |